Video: Úlfur - Black Shore From upcoming White Mountain, to be released by Kimi Records 2012… http://t.co/r1OEcAr7
ÚLFUR (IS)
Hailing from Reykjavik, Iceland, Úlfur sets out for his solo project of concrete sounds and synthesis. His experiences from other projects – a touring bassist for Jónsi and a member of hardcore outfit Swords of Chaos – lets him create expansive instrumentations that draw elements from a wide range of genres. Field-recordings with electric undergrowth, along with subtle guitars converge in warm and intriguing soundscapes of many forms and colors.
His debut – White Mountain - is to be released in 2012 by Kimi Records. It is the result of over two years of work, recorded during his travels around the world while on tour with Jónsi.
Comments:
“Úlfur’s music is inspiring. His soundscapes and sense of imagination make this album unique” – Jónsi of Sigur Rós
Tuesday, January 31st, 2012 | Kimi News • Releases • World
Prinspóló has just now released the song Föstudagsmessa (e: Fridaymass). This song is the first new song Prinspóló releases since the release of Jukk, his debut LP, in June 2011. Árni+1 from FM Belfast produced the song with Prinspóló. A video for Föstudagsmessa is premiered alongside this exclusive release. The video was directed by Berglind Häsler and the Prins.
Check out his website for a exclusive look off the video
and here you can stream the song:
Prinspóló gefur í dag út lagið Föstudagsmessa. Lagið er fyrsta lagið sem Prinspóló sendir frá sér síðan breiðskífan Jukk kom út haustið 2010. Árni Rúnar Hlöðversson úr Fm Belfast var Prinsinum til halds og traust við framleiðslu lagsins. Jafnframt kemur út myndband við lagið sem Berglind Häsler gerði ásamt prinsinum.
Thursday, January 19th, 2012 | Iceland • Kimi News • Releases
LINE-UP:
21:30: ÚLFUR
22:30: NOLO
23:30: SNORRI HELGASON
00:30: MR. SILLA
Jólahazar Kimi Records #2 verður haldinn á skemmtistaðnum Bakkus laugardaginn 10. desember í samstarfi við tónlistarveituna Gogoyoko. Jólahazar er árviss viðburður á skemmtistaðnum Bakkus og þar munu hljómsveitir spila músík og Kimi Records kynnir það helsta sem komið hefur út á árinu, eins eru plötur og ýmiskonar varningur til sölu á prýðilegu og umsemjanlegu verði.
Þeir sem koma fram á Jólahazar #2 eru Úlfur, Nolo, Snorri Helgason og Mr. Silla.
Úlfur er nýtt sólóverkefni Úlfs Hanssonar. Fyrsta breiðskífa Úlfs mun koma út hjá Kimi Records í á næsta ári og nefnist hún White Mountain. Platan mun einnig koma út í Japan hjá útgáfunni Afterhours.
Nolo eru ein af hljómsveitum þess árs, en þeir gáfu út sína fyrstu breiðskífu hjá Kimi Records í nóvember síðastliðnum. Platan Nology þykir mikið afbragð og rataði meðal annars inn á úrvalslista Kraums, sem kynntur var í vikunni.
Snorri Helgason sendi frá sér sína aðra breiðskífu í lok sumars hjá Kimi Records. Platan Winter Sun hefur verið lofuð í hástert og fengið glimrandi dóma hjá gagnrýnendum og tónlistaráhugamönnum, hana er einnig að finna á árslista Kraums.
Mr. Silla er svokölluð súpergrúbba íslenskrar jaðartónlistarsenu. Hljómsveitin er leidd af hinni undursamlegu Sigurlaugu Gísladóttur og skipuð Halldóri Ragnarssyni (Seabear) á bassa, Gunnari Tynes (múm) á bassa, Gylfa Blöndal (kimono) á gítar, Magnúsi Trygveson Eliassen (Sin Fang, AdHd) á trommur og Kristinni Gunnari Blöndal (Bob Justman) á gítar og hljómborð. Hljómsveitin vinnur að upptökum um þessar mundir og er stefnt á útgáfu á árinu 2012.
Friday, December 9th, 2011 | Kimi News
Popppönk hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér jólasmáskífuna Jólafeitabolla. Fæst hún í rafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum landsins, svo sem gogoyoko, tónlist.is og vefverslun Havarí. Smáskífan inniheldur tvö jólalög, annað er nýtt lag úr smiðju Morðingjanna sjálfa og nefnist það Jólafeitabolla og hitt er ábreiða á hinu þekkta lagi Þú komst með jólin til mín. Morðingjarnir fengu góða gesti til aðstoðar við upptökur á lögunum tveim. Jens Hansson úr Sálinni hans Jóns míns þenur saxófóninn í Jólafeitabollu og svo syngur Þórunn Antonía með Hauki í Þú komst með jólin til mín.
Jólafeitabolla hefur fengið að hljóma talsvert í eyrum landsmanna síðustu daga þar sem lagið er notað af Skjánum til að kynna jóladagskrá sína.
Lögin munu einnig koma út sem jólakort á næstu dögum og munu þau fást í öllum helstu verslunum. Hverju korti fylgir niðurhalskóði og geta viðtakendur kortanna náð sér í lögin hér á síðunni. Kortið er hannað af Hauki Morðingja og Svavari Pétri Eysteinssyni.
Lögin voru tekin upp og að öllu leyti unnin af upptökusnillingnum Axeli ‘Flex’ Árnasyni í Stúdíó Reflex.
Hér má svo hlusta á og/eða kaupa lögin tvö:
Benni Hemm Hemm – FF ekki CC from Máni M. Sigfússon on Vimeo.
Í dag, 18. nóvember 2011, kl. 15 á íslenskum staðartíma verður nýtt myndband frumsýnt víðsvegar um internetið. Myndband þetta er í leikstjórn Næsarans og er við lagið FF ekki CC eftir Benna Hemm Hemm af hin stórgóðu Skot (er kom út í fyrra á vegum Kimi Records). Platan kom nýverið út á erlendum mörkuðum sem og sjötomma með viðkomandi lagi (fæst hér). Á bakhlið sjötommunnar er að finna stórgóða endurgerð FM Belfast á sama lagi. Eins er bakhlið á umslaginu endurgerð af FM Belfast sömuleiðis.
Um Næsarann:
Næsarinn er hópur sem settur var saman þegar Spaugsstofan var tekin af dagskrá RÚV. Nú er Spaugsstofan á Stöð 2. Næsarnir eru: Árni Vilhjálmsson, Máni Sigfússon, Sindri Már Sigfússon, Örvar Þóreyjarson Smárason og fleiri.
///English
Today at 1500 hours (icelandic local time), November the 18th, a video will be premiered on the Internet. The Video is by The Nicers for the song FF ekki CC by Benni Hemm Hemm. This song can be found on Skot, which was recently released on Kimi Records. This song is the first single and can be found on a seven-inch with the same name (available here). FM Belfast remixed the song for the B-side and also remixed the cover for the backside of the sleeve.
About THE NICERS:
The Nicers are a group from Iceland formed when Iceland’s most loved comedy show was cancelled on RÚV (Icelandic National TV). Now this show is on a Channel 2 in Iceland. The Nicers are: Örvar Þóreyjarson Smárason, Sindri Már Sigfússon, Máni Sigfússon, Árni Vilhjálmsson and more.
Friday, November 18th, 2011 | Kimi News
Platan LOCUST SOUNDS er komin út og hefur fengið frábærar móttökur. Mörgum þykir hún vera besta, aðgengilegasta og æðislegasta verk Reykjavík!ur til þessa (samt hafa allar hinar plöturnar þótt vera meistaraverk líka, það eru til fimm stjörnu dóma til að sanna það!). Arnar Eggert Thoroddsen fór fögrum orðum um Locust Sounds í fjögurra stjörnu plötudómi í Morgunblaðinu og sagði meðal annars: “Platan býr yfir mörgum og mismunandi blæbrigðum en heildarpakkinn er svo gott sem skotheldur”. Og ekki nóg með það, heldur dýrkaði líka Dr. Gunni plötuna í Fréttatímanum og sagði að sveitin skipaði sér í VIP lið íslensks rokks með henni.
Locust Sounds fæst í íslenskum verslunum sem og á internetinu, meðal annars á gogoyoko:
NOLO, sérfræðingar okkar á sviði úthverfapopps, hefur sent frá sér glænýja afurð sem bætir, hressir og kætir. Nology nefnist þessi undraverða nýjung og þykir hún afbragð að öllu leyti. Hér er á ferðinni hljómdiskur sem er sérhannaður til að bæta sálarlíf íslensks almennings og koma honum í gott stuð. Engar aukaverkanir eru af venjubundinni notkun á Nology, en fólk er vinsamlegast beðið að um að virða háttatíma.
hægt er að prófa Nology án endurgjalds hér að neðan:
Wednesday, November 9th, 2011 | Kimi News
Hi there
Stream Locust Sounds with Reykjavik! at will…
Sunday, October 23rd, 2011 | Kimi News
Our dear friend Prinspóló and his band are going on tour in Germany and Poland! Since being a little boy Prinspóló has dreamt of visiting Poland and to feast on his favorite food night and day, namely Prince Polo chocolate bars.
Come see mr. Prinspóló and his band play his music, tell stories and eat chocolate bars this coming September!
Dates:
GERMANY:
18.09.2011 – Berlin – Monarch (Skalitzer Str. 134) – @ 20:00 W/ DJ Kimi
POLAND:
19. 09. 2011 – Ostrzeszów – Kawiarnia Baszta (ul. Zamkowa 6) – @ 20:00
20. 09. 2011 – Poznań – Meskalina (Stary Rynek 6, Arsenał) –@ 20:00
21. 09. 2011 – Łódź – Fabryscena (ul. Piotrkowska 138) – @ 20:00
(with screening of Backyard)
22. 09. 2011 – Oborniki Śląskie – Salonik 4 Muz (ul. Piłsudskiego 13) – @ 18:30
23. 09. 2011 – Kraków – Betel (Pl. Szczepański 3) – @ 20:30
(o godz. 19 – w Kinie Pod Baranami screens Backyard)
There is some more info, blogs and updates on the adventures of Prinspóló on Facebook!
check out the song Prinspóló on Gogoyoko!:
Önnur breiðskífa hljómsveitarinnar Hellvar, Stop That Noise, verður fáanleg í forsölu hjá gogoyoko frá miðnætti föstudagsins 8. september. Opinber útgáfudagur plötunnar er hins vegar miðvikudagurinn 14. september en þá kemur platan í verslanir.
Eins og allir vita byrjaði hljómsveitin Hellvar sem dúett sem hægt og rólega óx í kvintett en í hvert sinn sem hljómsveitin bætir við sig meðlimi er viðkomandi látinn halda að minnsta kosti 20 mínútna uppistand. Haukur hlýtur þar enga undanþágu og samkvæmt hefðinni þarf hann að sýna og sanna að hann þoli vægðarlaust sviðsljósið.
Fyrstu lögin af Stop That Noise, Ding an Sich og I Should Be Cool, hafa notið töluverðra vinsælda á Rás 2 og X-inu 977 og er Hellvar á bullandi siglingu þessa dagana eftir vel heppnaða tónleikaferð til Bandaríkjanna í sumar. Framundan er mikil spilamennska til að fylgja plötunni eftir, fyrirhugaðir eru útgáfutónleikar í lok september sem og heill hellingur af tónleikum á og í kringum Iceland Airwaves.
Aron Arnarsson stjórnaði upptökum og sá um hljóðblöndun á Stop That Noise en um tónjöfnun (mastering) sá JJ. Golden frá Golden Mastering, JJ hefur m.a. unnið með böndum eins og Primus, Sonic Youth, Calexico og Neurosis. Hljómurinn á plötunni er því kraftmikill, krassandi og eins og hann gerist bestur (http://www.goldenmastering.com/. Um umslagsgerð sá Svavar Pétur Eysteinsson.
Thursday, September 8th, 2011 | Kimi News
Platan Winter Sun með Snorra Helgasyni mun fást í rafrænni forsölu á tónlistarveitunni www.gogoyoko.com frá og með deginum í dag, 28. júlí. Formlegur útgáfudagur plötunnar á geisladiski er svo 4. ágúst. Winter Sun er önnur breiðskífa Snorra Helgasonar undir eigin nafni, en áður hefur hann gefið út tvær breiðskífur með vinum sínum í Sprengjuhöllinni, þar á meðal hina geysivinsælu Tímarnir okkar. Winter Sun er tekin upp af Sindra Má Sigfússyni, hljóðblönduð af Snorra, Sindra og Bigga Sundlaugarverði og hljómjöfnuð af Alan Douches, en hann hefur meðal annars hljómjafnað plötur listamanna á borð við Fleetwood Mac, Animal Collectie og Sufjan Stevens.
Snorri Helgason mun fagna þessum útgáfudögum, þeim fyrri með tónleikum á Innipúkanum laugardaginn 30. júlí kl. 22:00 og þeim seinni með útgáfutónleikum á Faktorý Bar fimmtudaginn 4. ágúst. Miðasala á báða viðburði er á www.midi.is.
Hér er lag af plötunni:
Thursday, July 28th, 2011 | Kimi News
Snorri Helgason hefur sent frá sér lagið River en það verður að finna á næstu breiðskífu hans, Winter Sun. Platan mun koma út á Íslandi í lok júlí á vegum okkar hjá Kima. Lagið er hugljúfur söngur um lífsins farvegi. Um upptökur sá Sindri Már Sigfússon (Seabear, Sin Fang). Við flutning lagsins nýtur Snorri góðrar aðstoðar Sigurlaugu Gísladóttur (Mr. Silla, Múm) sem sér um bakraddir, Guðmundar Óskars Guðmundssonar (Hjaltalín, Borko) sem sér um bassaleik og Sóleyjar Stefánsdóttur (Sóley, Seabear, Sin Fang) sem sér um píanóleik. Sjálfur sér Snorri um söng, gítarleik, áslátt og munnhörpuleik. Umslag smáskífunnar er hannað af Hildu Gunnarsdóttur.
Monday, June 20th, 2011 | Kimi News
Prinspóló is the alter-ego of Skakkamanage’s front man Svavar Pétur Eysteinsson. Prinspóló sings about the important things in life, like food and senior citizens. His quirky lyrics and catchy tunes has gathered him some popularity in downtown Reykjavík music scene and among suburbial housewives.
Prinspóló has released one EP called ‘Einn Heima’ and Jukk is his first LP. The album contains 9 songs in Icelandic about candy, hips, Spaghetti Bolognese and marriage. Jukk is an icelandic slang meaning everything, something and nothing. Prinspóló performs with a band consisting of members from Fm Belfast, Reykjavík! and Sudden Weather Change.
Reviews:
“… their songs are actually huge stadium rock hymns in disguise: so catchy, rich in details, elaborated and thrilling that it would drive many rock stars green with envy.”
Florian Zühlke / Reykjavik Grapevine
“Jukk … doesn’t pretend to be something that it is not. It is a pleasantly high-spirited album, refreshing also in the way it is played and recorded … Jukk is a 100% indie pop album, and a fun one. Because let’s not forget pop music is also about entertainment.”
www.icelandchronicles.com
“Smashing lyrics, entertaining performance and irresistible lo-fi sound … Excellent Jukk that brightens up the day.”
Trausti Júlíusson / Frettabladid Newspaper
“Unbelievably cool and funny. Lyrically excellent.”
Ingveldur Geirsdóttir / Morgunbladid Newspaper
“The masterful Svavar Pétur Eysteinsson is on another level with his Prinspóló. Raw, Cheeky – fuzzy masterpiece. I salute.” Arnar Eggert Thoroddsen, musical writer and critic
Monday, May 23rd, 2011 | Iceland • Kimi News • Releases • World
The Icelandic singer/songwriter Snorri Helgason will perform on a show in Krakow, Poland on wednesday 18th of May. Snorri will perform on concert in Klub Zazcek in the student district at show with Poland’s biggest independent musicians. The concert is a part of a student festival week held in Krakow.
Snorri will perform new songs from his upcoming album, Winter Sun, which is to be released in Iceland by Kimi Records in July. Snorri produced Winter Sun with Sindri Már Sigfússon, also know as Sin Fang and as the front man of Icelandic indie outfit Seabear.
info on show:
and a song by Snorri Helgason, found on the summer compilation Hitaveitan:
Swords of Chaos are performing on SXSW 2011. The band will perform on the venue Prague on Thursday 17th of March at 22:15. They will also do a handful of off venue show during the festival and a few shows in New York the weekend prior to the festival.
Swords of Chaos recently released their first LP, The End is As Near As Your Teeth. The band has been compared to Converge, Fucked Up and even at times to Sunn O))).
The album has been described as a powerful, chaotic and yet detailed hardcore album that requires repeated listenings.
Swords of Chaos is though first and foremost a band that should be seen live. The band has received praise for their neckbreaking and chaotic shows where the crowds usually let loose and join the band in frenzy.
Schedule:
11.03.2011 – Fontana’s Bar, NYC
12.03.2011 – Cakeshop, NYC
14.03.2011 – XPO 929 – NYC
16.03.2011 – Dominican Joe, Austin, TX
17.03.2011 – SXSW – Prague
Reviews:
album:
“The rock and subtle evil of Breach combined with the courage for experiments and the raw, overwhelming power of Converge. Maybe the most promising metal/hardcore band in Iceland today. Bob from Twin Peaks would dance to this” – Florian Zühlke, www.grapevine.is
“Here’s raw energy to spare, and just as unpolished as it should be.” – Alyssa Nilsen, www.musikknyheter.no
live:
“First band on was the magnificent Swords of Chaos, whose punk-tinged noise rock fit the place perfectly. There are many things you can say about Swords of Chaos, but boring is definitely not one of them. Singer Úlfur leapt and bounced around the room while the band created some of the loudest, most abrasive rock music you’ll find in Reykjavík these days. Hopefully they’ll have a release of some sort out soon.” – Þórir Georg Jónsson, www.grapevine.is
“Swords of Chaos brought some real brutality with their searing, shambolic hardcore to a venue imaginatively called Venue. The four-piece shuggle onstage and proceed to kick, scream and bang their way into the hearts of the assembled mass. Sure enough, the mosh gets going and there are kids hanging precariously from pipes” – www.thrashhits.com
Thursday, March 10th, 2011 | Kimi News
We at Kimi Records are throwing a nice party in the middle of April with our favorite bands. It is called Reykjavik Music Mess and will be held in Downtown Reykjavik. We start our ticket sales today and it would be great if you would join us for fun filled festival. All info about the festival can be found on www.reykjavikmusicmess.com. The tickets are also available at the site. We have booked loads of bands.
Sin Fang gefur út Summer Echoes
Tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon gefur út sína aðra breiðskífu undir listamannanafninu Sin Fang hjá Kimi Records. Platan nefnist Summer Echoes og inniheldur 12 freyðandi poppslagara sem bera höfundi fagurt vitni. Ásamt því að reka Sin Fang er Sindri einnig meðlimur hljómsveitarinnar Seabear sem hefur gefið út tvær stórar plötur, nú síðast We Built a Fire á síðasta ári. Árið 2008 leit svo fyrst dagsins ljós sólóverkefni hans, Sin Fang Bous, en hann segir það hafa orðið til í æfingarhúsnæði Seabear á meðan hann beið eftir félögum sínum til æfinga. Sama ár kom út fyrsta platan, Clangour. Fékk hún lofsamlega dóma víðast hvar, meðal annars í Rolling Stone magazine, New York Times, The Guardian og fleiri virtum tímaritum.
Summer Echoes kemur út hjá Kimi Records á Íslandi og Morr Music á öðrum markaðssvæðum en Sindri hefur unnið náið með báðum útgáfum með allt sitt efni. Platan inniheldur 12 lög eins og fyrr segir og honum til halds og trausts eru m.a. hljóðfæraleikarnir Róbert Reynisson, Arnljótur Sigurðsson og Magnús Trygvason Eliassen en einnig syngja þær Sóley Stefánsdóttir og systurnar Sigurrós Elín, Lilja og Ingibjörg Birgisdætur í nokkrum lögum.
Sú síðastnefnda, myndlistarkonan Ingibjörg Birgisdóttir hannaði umslagið ásamt Sindra en báðar plötur Sin fang hafa einmitt verið mikið konfekt jafnt til eyrna og augna. Sin Fang hyggur á töluvert tónleikahald í kjölfar plötunnar og stendur nú yfir skipulagning tónleikaferðar um Evrópu og svo mun hann koma fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess í apríl.
Wednesday, March 2nd, 2011 | Iceland • Kimi News • Releases
Góðan dag.
Hljómsveitin Prinspóló heldur útgáfutónleika á Faktorý (áður Grand Rokk) fimmtudagskvöldið 17. febrúar. Prinspóló gaf nýverið út hljómplötuna Jukk hjá útgáfufélaginu Kimi Records og hefur platan fengið ágætar viðtökur hjá hlustendum. “Líklega besta plata allra tíma” sagði einhver meðan annar sagði “Kræst. Hvað ætlar maðurinn eiginlega að semja mörg lög um mat?”
Á tónleikunum verður Jukkið flutt í heild sinni auk þess sem nokkur lög af EP plötunni Einn Heima eru á efnisskránni.
Höfuðpaur Prinspóló er Svavar nokkur Eysteinsson en söguna má rekja allt aftur til ársins 2009. Þá bjó Svavar á Seyðisfirði og á leiðinni heim úr sundi einn daginn kom hann við í Shell skálanum og keypti sér súkkulaðistykki. Þar með var teningunum kastað og ekki aftur snúið. Hljómplötuútgáfan Brak fékk veður af þessu og gaf út Einn Heima um vorið. Lagið Átján og hundrað naut gríðarlegra vinsælda og eftir að Svavar hlustaði á plötuna lofaði hann sjálfum sér að fást aldrei við tónlist framar. Það loforð braut hann nokkrum mánuðum síðar og í kjölfarið leit Jukkið dagsins ljós.
Auk Svavars skipa hjómsveitina Kristján Freyr trommuleikari, Lóa Hjálmtýsdóttir hljómborðsleikari og Loji Höskuldsson gítarleikari. Þau hafa einnig getið sér gott orð sem eftirhermur, veislustjórar og handverksfólk.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1000 krónur og hefjast þeir upp úr klukkan tíu.
Grútjukkuð stuðkveðja,
Prinspóló
Wednesday, February 16th, 2011 | Kimi News
Our dear friends of Fm Belfast remixed the first single from Benni Hemm Hemm’s upcoming release, Skot. They also remixed the album cover, which was very nice of them.
Listen to the remix on gogoyoko:
english below
Havarí fer í frí
Blóm og kransar afþakkaðir, við munum koma aftur sko
Síðasti opnunardagur menningarmiðtöðvarinnar HAVARÍ er á morgun, laugardag 29. janúar. Í tilefni af því verður mikið húllúmhæ, glens og grín. Búðinni verður formlega lokað með stórtónleikum FM Belfast og Prinspóló kl. 16 en þessar hljómsveitir eru tengdar versluninni órjúfanlegum böndum. Útsalan verður að sjálfsögðu á blússandi siglingu og hægt verður að gera góðan díl á músík, fatnaði, listaverkum, bókum og öllu tilheyrandi.
Havarí mun svo taka sér smá vetrarfrí en koma tvíelft til baka á vormánuðum á nýjum stað í miðborg Reykjavíkur og halda áfram að veita menningarlega afþreyingu af flestu tagi. Havarí verður áfram starfrækt á www.havari.is og stefnir á að vera með rafrænar uppákomur þar. Þá verða reglulega haldin Havaríkvöld víðsvegar um borgina þar til við finnum þak yfir höfuð okkar og annarra.
////
Havarí takes a break
Saturday January 29th will be Havarí’s last day in Austurstræti 6, dowtown Reykjavík. We are taking a short break to find a new place for our shop/gallery/venue/hangout. We will close in style, a instore concert with Fm Belfast and Prinspóló at 16:00.
Havarí will open up again in the springtime. Till then people will have to go into hiatus or use our digital store, www.havari.is. We will also throw a few Havarí parties at Bakkus whilst away.
Songs with Fm Belfast and Prinspóló:
english below
Hin stórkostlega og spaghettídrónaða The Heavy Experience mun halda útgáfutónleika þriðjudagskvöldið 18. janúar kl. 21:30. Hljómsveitin gaf út tíu tommuna The Heavy Experience stuttu fyrir jól og hafa fengið einróma lof fyrir. Tónlistin er þung, hæg og hæfir útgáfuforminu afar vel en hljómplatan er 45 snúninga og einkar eigulegur gripur. Ekki skemmir svo einstaklega góð hönnun Tuma Árnasonar fyrir.
Tónleikarnir eru á Bakkus og það er frítt inn. Hinn mjög svo skemmtilegi Arnljótur hitar upp með einhverri sýru.
###//###
The spaghetti-drone rockers of The Heavy Experience will celebrate the release of the their first 10 inch EP on Bakkus. The concert will go down on January 18th (Tuesday) at 21:30.
Arnljótur supports.
Here you can listen for free to the songs of the album:
English below
Benni Hemm Hemm er á leið í smá tónleikaferð um Evrópu nú í janúar/febrúar. Í tilefni af því ætlum við að gefa út 7″ með FF ekki CC. Fm Belfast gerðu fyrir okkur remix og verður þessi glimrandi góða snilld fáanleg í völdum verslunum um heim allan. FF ekki CC er fyrsta smáskífulagið af Skot, en Kimi Records mun gefa hana út á alþjóðavísu þann 1. apríl næstkomandi.
FF ekki CC mun koma út 12. febrúar næstkomandi. Hér að neðan má svo sjá upplýsingar um tónleikaferðina.
###//###
Benni Hemm Hemm is going on a small European tour in Jan/Feb. On this occasion we will release his first single from upcoming LP, Skot. Skot will be released in worldwide on April 1st 2011 and will be available in selected stores. The Single is called FF ekki CC and we asked FM Belfast to make a remix for the b-side.
Tour schedule:
27.01.2011 Ja Ja Ja at The Lexington, London UK
28.01.2011 Buffalo Bar, Cardiff UK
29.01.2011 South Street Arts Centre, Reading UK
11.02.2011 La Route du Rock Festival, Rennes FR
12.02.2011 One Of A Million Festival, Baden CH
13.02.2011 E-Werk, Erlangen DE
14.02.2011 Blue Shell, Köln DE
16.02.2011 Musigbistrot, Bern CH (solo)
17.02.2011 Plug & Play Festival, Lyon FR (solo)
19.02.2011 Nordklang Festival, St. Gallen CH (solo)
Links:
Stream the song on www.gogoyoko.com:
(hægri smella og niðurhala skjali)
Saturday, December 25th, 2010 | Kimi News
Við hjá Kimi Records ætlum að halda jóla- og útgáfufögnuð föstudaginn 17. desember með stórtónleikum á tónleikastaðnum Bakkus við Tryggvagötu. Þær hljómsveitir sem koma fram á tónleikunum hafa allar gefið út efni árinu hjá útgáfunni en fram koma: The Heavy Experience, kimono, Miri (dj sett), Orphic Oxtra, Prinspóló, Retro Stefson, Reykjavík!, Stafrænn Hákon og Sudden Weather Change. Hús opnar kl. 21:00 og tónleikar hefjast stundvíslega kl. 21:30. Kimi Records verður með plötur hljómsveitanna til sölu á staðnum á frábæru verði ásamt öðrum varningi tengdum hljómsveitunum.
Útgáfuárið hefur verið afar gott og augljóslega mikil gróska í íslenskri tónlistarsenu um þessar mundir. Við gáfum út 10 breiðskífur, 2 stuttskífur og 2 smáskífur sem allar hafa fengið afar góðar viðtökur hjá tónlistaráhugafólki sem og gagnrýnendum. Eins hefur undirfélag Kimi Records, neðanjarðarútgáfan Brak Hljómplötur, gefið út 9 plötur.
Árið 2011 stefnir í að vera gott ár og margt gott í vændum hjá Kimi Records. Helst má þar nefna nýja breiðskífu Sin Fang, stuttskífu og breiðskífu með Sudden Weather Change, þriðju breiðskífu Reykjavík!ur og margt fleira.
Thursday, December 16th, 2010 | Kimi News
English below
Við viljum benda á að við höfum opnað nýja og endurbætta vefbúð í samstarfi við menningarafurðarstöðina HAVARÍ. Þar er hægt að kaupa allar okkar titla og mun meira til.
Í tilefni af opnun og þeirri staðreynd að það eru að koma jól þá ætlum við að vera með kynningarverð á öllum plötunum okkar út desember. Nýjar plötur eru á 2.000 kr. og eldri gullmolar á 1.500 kr. Póstsendingarkostnaður er lágur og að auki hverfandi eftir því sem meira er keypt.
Hér er hlekkur beint á búðina: www.havari.is/webshop
—————–
We have opened a new and improved webshop with the magnificent cultural center and record store HAVARÍ. There one can buy all our music and more.
In light of this opening and the fact that christmas is upon us we have decided to have an introductory discount on all our albums throughout December. Check out our fabulous store and get your favorite music for less.
Here is a link straight to the store: www.havari.is/webshop
Tuesday, December 7th, 2010 | Kimi News
Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm hefur gefið út sína fjórðu breiðskífu og kallast hún SKOT. Fyrsta plata hans kom út árið 2006, platan Benni Hemm Hemm og síðan hafa þær Kajak (2007) og Murta St. Calunga (2008) fylgt í kjölfarið en fyrir utan þær stóru hafa komið út nokkrar smáskífur og stuttskífur.
Það kveður við nýjan og hressilegan tón hjá Benna á SKOTi en þar má finna léttleikandi og grípandi lagasmíðar og launfyndna og vandaða textagerð. Um undirspil á plötunni sá hljómsveitin Retro Stefson ásamt gítarleikaranum Róbert Sturla Reynissyni (múm, Sing Fang) og Þórarni Baldurssyni víóluleikara. SKOT var tekin upp í Sundlauginni síðastliðið sumar.
Benni býr nú ásamt fjölskyldu sinni á SKOT-landi, n.t.t. í Edinborg og hefur hann flakkað um heiminn þveran og endilangan síðustu misseri. Fyrr á árinu gaf hann út fimm laga EP plötuna Retaliate og fékk hún lofsverða dóma. Eins Benni Hemm Hemm þátt í Listahátíð Reykjavíkur síðasta vor þar sem hann flutti sitt eigið tónverk í Íslensku Óperunni ásamt skoska lsitamanninum Alasdair Roberts.
Hér má hlusta á lag:
Hin tiltölulega nýstofnaða rokkhljómsveit The Heavy Experience mun senda frá sér einkar haganlega gerða 10 tommu hljómskífu þann 10. desember á vegum Kimi Records. Platan er samnefnd hljómsveitinni og inniheldur tvö glæný lög og er forsmekkur að stærri plötu sem er væntanleg á næsta ári. Heavy Experience er fimm manna sveit frá Reykjavík og hafa meðlimir hennar gert jaðargarðinn frægan með hljómsveitunum Swords of Chaos, Me, the Slumbering Napoleon, Doctuz, Carpet Show o.s.frv. Hljómur sveitarinnar er einkar athyglisverður fyrir það leyti að einn meðlima leikur á saxafón og þykir það hæfa þessu hæga en þunga rokki sem streymir um vit hlustenda.
The Heavy experience lék við góðar undirtektir á nýliðinni Airwaves hátíð og sagði meðal annars gagnrýnandi Grapevine að hljómsveitin hafi náð þeim undraverða árangri að láta saxafón hljóma töff. Hljómsveitin stefnir á smá tónleikahald í jólaösinni um leið og prófatíð lýkur, hljómsveitin mun meðal annars koma fram á Jólahazar Kimi Records þann 17. desember næstkomandi á Bakkus.
Plötuspilaralausir rokkunnendur þurfa þó ekki að örvænta því lögin verður hægt að nálgast á öllum helstu tónlistarveitum landsins auk þess sem niðurhalskóði kemur til með að fylgja plötunni. Þá er hægt að nota plötuna sjálfa sem stofustáss, en umslagið þykir mikið augnayndi.
Hér má hlusta lag af plötunni:
Fjórða breiðskífa Benna Hemm Hemm kemur út hjá Kimi Records 1. des. Hún nefnist SKOT og inniheldur 10 ný lög. Skot er hinsvegar fáanleg í rafrænu forútgáfuformi á www.gogoyoko.com Í tilefni af þessari útgáfu mun Benedikt gera sérferð á klakann til að halda útgáfutónleika, eins og hefðir segja til um. Tónleikarnir verða á nýendurbættum Bakkus laugardagskvöldið 11. desember og hefjast kl. 21. Hljómsveitin Retro Stefson sér um undirleik fyrir Benna Hemm Hemm en þau einmitt voru í því hlutverki við upptökur á Skoti. Um upphitun sér spútník undrið Prinspóló, en fyrsta breiðskífa hans var einmitt að koma út. Eftir tónleika Benna Hemm Hemm mun Bárujárn leika nokkur lög fyrir gesti og að lokum munum við DJ Öfull þeyta skífum fram undir morgun.
Miðasala á tónleikana fer fram í Havarí í Austurstræti 6 og verð í forsölu 1.000 kr. Miðaverð við hurð er 1.500 kr. Miðasala hefst í Havarí miðvikudaginn 24. nóvember.
Hér er svo lag af plötunni í boði gogoyoko:
Wednesday, November 24th, 2010 | Kimi News
Short english version below:
Fjórða breiðskífa Benna Hemm Hemm kemur út þann 24. nóvember næstkomandi. Nýja platan heitir Skot og var tekin upp í Sundlauginni nú í sumar. Á Skoti eru 10 lög sem Benni hefur unnið í undanfarið ár í Skotlandi, þar sem hann er búsettur. Á plötunni kveður við nýjan tón, því þegar Benni skaust til Íslands til að taka upp plötuna fékk hann enga aðra en ofursprengistuðhljómsveitina Retro Stefson með sér í stúdíóið. Lögin eru öll þó öll hreinræktuð Benna Hemm Hemm lög, leikin af alkunnri snilld Retro Stefson-liða.
Tvennir útgáfutónleikar verða haldnir í tilefni af útgáfunni. Fyrri tónleikarnir verða í Reykjavík 10. desember og þeir síðari á Akureyri degi síðar. Þeir verða kynntir nánar síðar.
Nú þegar má nálgast tvö lög af plötunni á tónlistarveitunni Gogoyoko í formi smáskífunnar Við við til til / FF ekki CC. FF ekki CC, þar sem Benni sannfærir sjálfan sig um að kjötát sé slæm hugmynd, fór í spilun í sumar og hefur hlotið frábærar viðtökur. Við við til til er annað lag plötunnar sem fer í spilun, en það fjallar á einfaldan hátt um ljúfar stundir, harðan raunveruleika og nauðsynlegar breytingar.
Two new songs with Benni Hemm Hemm
Two new songs with Benni Hemm Hemm are now available on Gogoyoko. They are from upcoming album called Skot. This album will be released in Iceland on November 24th. The album will also be released abroad in March 2011. Links to the songs can be found below.
Monday, November 8th, 2010 | Kimi News