Benni Hemm Hemm slær í gegn á Fringe í Edinborg

Tónlistarmaðurinn Benedikt H. Hermannsson vinnur um þessar mundir við sýningar á leikverkinu The Track of the Cat sem sýnt er á Fringe leiklistarhátíðinni í Edinborg. Benedikt samdi tónlist fyrir uppsetninguna sem og flytur hana meðan á sýningum stendur.

Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Walter Van Tilburg Clark frá árinu 1949 og skoski rithöfundurinn Chris Fittock og leikstjórinn Graeme Maley setja það upp. Verkið fjallar um landnemafjölskyldu í vesturríkjum Bandaríkjana á 19. öld og baráttu þeirra við náttúruöflin, einangrun og eigin fortíð. Uppsetningin er sérstök að öll hlutverk eru leikin af konum og eini karlmaðurinn á sviði er Benedikt sjálfur.

Verkið hefur fengið afar góða dóma og þá sérstaklega tónlist og flutningur Benedikts. Segir meðal annars í dómi hátíðarinnar:

“A most excellent factor is the live music from Benni Hemm Hemm which brings true poiniancy and maintains tension throughout.” – Fringe review, www.edfringe.com

Og skoska dagblaðið The Scotsman segir:

“And there’s some powerful live music from Edinburgh-based indie musician Benni Hemm Hemm – the only man on stage, and increasingly a key voice in the family’s dialogue with a natural world that both reflects their inner tensions, and generates the pressures that drive them to breaking-point.” – The Scotsman

Nánari upplýsingar:

www.thetrackofthecat.com

www.edfringe.com


Thursday, August 12th, 2010 | 9:47 am