Video: Snorri Helgason - Mockingbird amazing video to an amazing song! from Winter Sun (2011, Kimi Records),... http://t.co/8FiC9y8q
Önnur breiðskífa hljómsveitarinnar Hellvar, Stop That Noise, verður fáanleg í forsölu hjá gogoyoko frá miðnætti föstudagsins 8. september. Opinber útgáfudagur plötunnar er hins vegar miðvikudagurinn 14. september en þá kemur platan í verslanir.
Eins og allir vita byrjaði hljómsveitin Hellvar sem dúett sem hægt og rólega óx í kvintett en í hvert sinn sem hljómsveitin bætir við sig meðlimi er viðkomandi látinn halda að minnsta kosti 20 mínútna uppistand. Haukur hlýtur þar enga undanþágu og samkvæmt hefðinni þarf hann að sýna og sanna að hann þoli vægðarlaust sviðsljósið.
Fyrstu lögin af Stop That Noise, Ding an Sich og I Should Be Cool, hafa notið töluverðra vinsælda á Rás 2 og X-inu 977 og er Hellvar á bullandi siglingu þessa dagana eftir vel heppnaða tónleikaferð til Bandaríkjanna í sumar. Framundan er mikil spilamennska til að fylgja plötunni eftir, fyrirhugaðir eru útgáfutónleikar í lok september sem og heill hellingur af tónleikum á og í kringum Iceland Airwaves.
Aron Arnarsson stjórnaði upptökum og sá um hljóðblöndun á Stop That Noise en um tónjöfnun (mastering) sá JJ. Golden frá Golden Mastering, JJ hefur m.a. unnið með böndum eins og Primus, Sonic Youth, Calexico og Neurosis. Hljómurinn á plötunni er því kraftmikill, krassandi og eins og hann gerist bestur (http://www.goldenmastering.com/. Um umslagsgerð sá Svavar Pétur Eysteinsson.