Video: Úlfur - Black Shore From upcoming White Mountain, to be released by Kimi Records 2012… http://t.co/r1OEcAr7
Safnskífan Hitaveitan: Með lögum skal land verma, kemur út þann 17. júní. Stjórn Hitaveitunnar getur ekki beðið eftir að landsmenn fái að njóta tónlistarinnar sem er að finna á safnskífunni og því er hún fáanleg í vefbúð Kimi Records (kimi.grapewire.net) frá og með deginum í dag, laugardaginn 12. júní. Hún er á sérstöku tilboðsverði fram að útgáfu og því er um að gera að tryggja sér eintak. Hægt er að kaupa geisladiskinn með niðurhali og fá hann sendan frítt heim þegar platan kemur út. Einnig er hægt að kaupa einungis niðurhalsútgáfu af plötunni.
Í tilefni af þessari forútgáfu vilja aðstandendur gefa ykkur eitt lag í samstarfi við www.mbl.is. Lagið Partýþoka með Prins Póló & Skakkamanage er rakinn sumarsmellur sem fjallar um ástina, sumarið og innsetningar. Lagið nær að fanga inntak safnskífunnar nokkuð vel og veitir hlustendum góða innsýn í tilgang hennar.
Hitaveitan er 14 laga safnskífa með 12 nýjum lögum og tveimur ábreiðum. Að þeim standa 19 hljómsveitir en nokkur laganna eru samstarfsverkefni. Meðal þeirra sem eiga lag á Hitaveitunni eru: Morðingjarnir, Retron, Retro Stefson & Miri, Snorri Helgason, Prófessorinn og Memfismafían, Hjálmar & Helgi Björns, Mugison & Reykjavík!, Prins Póló & Skakkamanage og fleiri og fleiri.