Jólafeitabolla

feitabolla-rafcoverlowres

Popppönk hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér jólasmáskífuna Jólafeitabolla. Fæst hún í rafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum landsins, svo sem gogoyoko, tónlist.is og vefverslun Havarí. Smáskífan inniheldur tvö jólalög, annað er nýtt lag úr smiðju Morðingjanna sjálfa og nefnist það Jólafeitabolla og hitt er ábreiða á hinu þekkta lagi Þú komst með jólin til [...]

Artist »

Popppönk hljómsveitin Morðingjarnir hefur sent frá sér jólasmáskífuna Jólafeitabolla. Fæst hún í rafrænu formi á öllum helstu tónlistarveitum landsins, svo sem gogoyoko, tónlist.is og vefverslun Havarí. Smáskífan inniheldur tvö jólalög, annað er nýtt lag úr smiðju Morðingjanna sjálfa og nefnist það Jólafeitabolla og hitt er ábreiða á hinu þekkta lagi Þú komst með jólin til mín. Morðingjarnir fengu góða gesti til aðstoðar við upptökur á lögunum tveim. Jens Hansson úr Sálinni hans Jóns míns þenur saxófóninn í Jólafeitabollu og svo syngur Þórunn Antonía með Hauki í Þú komst með jólin til mín.

Jólafeitabolla hefur fengið að hljóma talsvert í eyrum landsmanna síðustu daga þar sem lagið er notað af Skjánum til að kynna jóladagskrá sína.

Lögin munu einnig koma út sem jólakort á næstu dögum og munu þau fást í öllum helstu verslunum. Hverju korti fylgir niðurhalskóði og geta viðtakendur kortanna náð sér í lögin hér á síðunni. Kortið er hannað af Hauki Morðingja og Svavari Pétri Eysteinssyni.

Lögin voru tekin upp og að öllu leyti unnin af upptökusnillingnum Axeli ‘Flex’ Árnasyni í Stúdíó Reflex.

Hér má svo hlusta á og/eða kaupa lögin tvö:


More on...

Friday, December 2nd, 2011 | 9:08 am