Video: Snorri Helgason - Mockingbird amazing video to an amazing song! from Winter Sun (2011, Kimi Records),... http://t.co/8FiC9y8q
LINE-UP:
21:30: ÚLFUR
22:30: NOLO
23:30: SNORRI HELGASON
00:30: MR. SILLA
Jólahazar Kimi Records #2 verður haldinn á skemmtistaðnum Bakkus laugardaginn 10. desember í samstarfi við tónlistarveituna Gogoyoko. Jólahazar er árviss viðburður á skemmtistaðnum Bakkus og þar munu hljómsveitir spila músík og Kimi Records kynnir það helsta sem komið hefur út á árinu, eins eru plötur og ýmiskonar varningur til sölu á prýðilegu og umsemjanlegu verði.
Þeir sem koma fram á Jólahazar #2 eru Úlfur, Nolo, Snorri Helgason og Mr. Silla.
Úlfur er nýtt sólóverkefni Úlfs Hanssonar. Fyrsta breiðskífa Úlfs mun koma út hjá Kimi Records í á næsta ári og nefnist hún White Mountain. Platan mun einnig koma út í Japan hjá útgáfunni Afterhours.
Nolo eru ein af hljómsveitum þess árs, en þeir gáfu út sína fyrstu breiðskífu hjá Kimi Records í nóvember síðastliðnum. Platan Nology þykir mikið afbragð og rataði meðal annars inn á úrvalslista Kraums, sem kynntur var í vikunni.
Snorri Helgason sendi frá sér sína aðra breiðskífu í lok sumars hjá Kimi Records. Platan Winter Sun hefur verið lofuð í hástert og fengið glimrandi dóma hjá gagnrýnendum og tónlistaráhugamönnum, hana er einnig að finna á árslista Kraums.
Mr. Silla er svokölluð súpergrúbba íslenskrar jaðartónlistarsenu. Hljómsveitin er leidd af hinni undursamlegu Sigurlaugu Gísladóttur og skipuð Halldóri Ragnarssyni (Seabear) á bassa, Gunnari Tynes (múm) á bassa, Gylfa Blöndal (kimono) á gítar, Magnúsi Trygveson Eliassen (Sin Fang, AdHd) á trommur og Kristinni Gunnari Blöndal (Bob Justman) á gítar og hljómborð. Hljómsveitin vinnur að upptökum um þessar mundir og er stefnt á útgáfu á árinu 2012.