kimono – Easy Music For Difficult People

KRCD15_KIMONO_PRINTGítarrokksveitin kimono sendir frá sér sína þriðju hljóðversplötu þann 4. desember. Þessi níu laga gripur ber heitið Easy Music For Difficult People og er hún gefin út af jaðarútgáfunni Kimi Records. kimono ætlar að leika lög af plötunni í HAVARÍ þann 5. desember kl. 17 og býður útgáfufélag þeirra upp á léttar veitingar með tónleikunum.

kimono hefur um langt skeið verið í fremstu röð rokksveita á Íslandi og notið fádæma vinsælda tónlistarunnenda allt frá því að fyrsta plata þeirra, Mineur Aggressif, kom út árið 2003. Þessar vinsældir má skrifa nánast jafnt á grípandi lagasmíðar og sleitulausar tilraunir meðlima til að finna nýjar slóðir. kimono hafa líka ávallt kosið að koma hlustendum sínum á óvart með hverri nýrri skífu og hafa þær allar sinn karakter en að auki þennan einstaka hljóm sem þeir hafa skapað sér og gerir það að verkum að fólk þekkir umsvifalaust handbragðið, heyri það lög sveitarinnar.

Easy Music For Difficult People (EM4DP) markar tímamót í 8 ára sögu sveitarinnar því þetta er fyrsta breiðskífa kimono sem tríó en Halldór Ragnarsson, bassaleikari, sagði skilið við sveitina fyrir rúmum tveimur árum til þess að einbeita sér að öðru. Eftir stóð þríeykið Kjartan (trommur), Alex (gítar og söngur) og Gylfi (baritone gítar, rafgítar og bassi) og eftir nokkrar tilraunir til að finna hentugan breiðstrengjaleikara til að fylla stöðu Halldórs var ákveðið að ekki skildi ráðið í stöðuna. Þess í stað breyttist kimono í trío og Gylfi færði sig yfir á baritón gítar (hljóðfæri sem er mitt á milli þess að vera gítar og bassi). Sveitin smíðaði sér í kjölfarið hljóðverið Onomatopoeic í miðbæ Reykjavíkur og hófst handa við að setja saman sína þriðju breiðskífu (ef frá er talið samstarfsverkefnið Curver + kimono sem kom út árið 2007). Útkoman er sláandi gítarrokk, allt í senn harðara og meira grípandi en það sem sveitin hefur sent frá sér.

Platan var öll tekin upp lifandi (live) í einu herbergi. Hugmyndin var að forðast óþarfa yfirtökur (over-dub) og halda lifandi hljómi og þéttleika spilamennskunnar. Sem fyrr var það Aron Arnarsson sem tók upp og aðstoðaði við eftirvinnslu.

Platan var hljómjöfnuð hjá Golden Mastering í Kalíforníu í Bandaríkjunum.

EM4DP var sett í sérstaka forsölu og forhlustun á íslenska tónlistarvefnum gogoyoko.com viku fyrir útgáfu og viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa: platan er þriðja mest selda platan og sú önnur vinsælasta þegar kemur að hlustun.

Lagalisti:

1. Vienna

2. Black

3. Wire

4. Animal

5. Karen

6. Kente

7. Get Ready (For Some Pain To Have)

8. –

9. Tomorrow

Hönnun umslags: Hafsteinn Michael Guðmundsson

Tekin upp af Aroni Arnarssyni

Stjórn upptöku var í höndum Alex MacNeil

Fyrri útgáfur:

Mineur Aggressif (2003 – Smekkleysa)

Arctic Death Ship ( 2005 – Smekkleysa)

Curver + kimono (2007 – Tími)

Thursday, December 3rd, 2009 | 4:15 pm