Video: Úlfur - Black Shore From upcoming White Mountain, to be released by Kimi Records 2012… http://t.co/r1OEcAr7
Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Retrön er nú loks fáanleg í verslunum. Platan Swordplay & Guitarslay átti að koma út fyrir mánuði en vegna flókinnar hönnunar á umslagi tafðist framleiðsluferlið töluvert. Umslagið er í raun kastali Retrön liða og er öll hönnun mjög í anda hlutverkaleikja á borð við AD&D. Hönnun var á höndum Kolbeins Huga, Kára og Arnars Inga.
Retrön er tríó skipað þeim Kolbeini Huga, Kára og Arnari Inga og spilað synthakeyrðan dýflissumetal. Hljómsveitin hefur verið starfandi síðan 2004 og platan þeirra lengi í gerjun. Hljómsveitin ætlar að fagna útgáfu með tónleikum um næstu mánaðarmót en í millitíðinni kemur sveitin fram á tónleikum í Listasafni Reykjavíkur á Menningarnótt.
Platan er að sjálfsögðu fáanleg rafrænt í kimabúðinni hér á vefnum og einnig á gogoyoko