Video: Snorri Helgason - Mockingbird amazing video to an amazing song! from Winter Sun (2011, Kimi Records),... http://t.co/8FiC9y8q
Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm hefur gefið út sína fjórðu breiðskífu og kallast hún SKOT. Fyrsta plata hans kom út árið 2006, platan Benni Hemm Hemm og síðan hafa þær Kajak (2007) og Murta St. Calunga (2008) fylgt í kjölfarið en fyrir utan þær stóru hafa komið út nokkrar smáskífur og stuttskífur.
Það kveður við nýjan og [...]

Það kveður við nýjan og hressilegan tón hjá Benna á SKOTi en þar má finna léttleikandi og grípandi lagasmíðar og launfyndna og vandaða textagerð. Um undirspil á plötunni sá hljómsveitin Retro Stefson ásamt gítarleikaranum Róbert Sturla Reynissyni (múm, Sing Fang) og Þórarni Baldurssyni víóluleikara. SKOT var tekin upp í Sundlauginni síðastliðið sumar.
Benni býr nú ásamt fjölskyldu sinni á SKOT-landi, n.t.t. í Edinborg og hefur hann flakkað um heiminn þveran og endilangan síðustu misseri. Fyrr á árinu gaf hann út fimm laga EP plötuna Retaliate og fékk hún lofsverða dóma. Eins Benni Hemm Hemm þátt í Listahátíð Reykjavíkur síðasta vor þar sem hann flutti sitt eigið tónverk í Íslensku Óperunni ásamt skoska lsitamanninum Alasdair Roberts.
Hér má hlusta á lag:
More on... Benni Hemm Hemm