Summer Echoes

880918010427

Sin Fang gefur út Summer Echoes
Tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon gefur út sína aðra breiðskífu undir listamannanafninu Sin Fang hjá Kimi Records. Platan nefnist Summer Echoes og inniheldur 12 freyðandi poppslagara sem bera höfundi fagurt vitni. Ásamt því að reka Sin Fang er Sindri einnig meðlimur hljómsveitarinnar Seabear sem hefur gefið út tvær stórar plötur, nú síðast [...]

Artist »

Sin Fang gefur út Summer Echoes

Tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon gefur út sína aðra breiðskífu undir listamannanafninu Sin Fang hjá Kimi Records. Platan nefnist Summer Echoes og inniheldur 12 freyðandi poppslagara sem bera höfundi fagurt vitni. Ásamt því að reka Sin Fang er Sindri einnig meðlimur hljómsveitarinnar Seabear sem hefur gefið út tvær stórar plötur, nú síðast We Built a Fire á síðasta ári. Árið 2008 leit svo fyrst dagsins ljós sólóverkefni hans, Sin Fang Bous, en hann segir það hafa orðið til í æfingarhúsnæði Seabear á meðan hann beið eftir félögum sínum til æfinga. Sama ár kom út fyrsta platan, Clangour. Fékk hún lofsamlega dóma víðast hvar, meðal annars í Rolling Stone magazine, New York Times, The Guardian og fleiri virtum tímaritum.

Summer Echoes kemur út hjá Kimi Records á Íslandi og Morr Music á öðrum markaðssvæðum en Sindri hefur unnið náið með báðum útgáfum með allt sitt efni. Platan inniheldur 12 lög eins og fyrr segir og honum til halds og trausts eru m.a. hljóðfæraleikarnir Róbert Reynisson, Arnljótur Sigurðsson og Magnús Trygvason Eliassen en einnig syngja þær Sóley Stefánsdóttir og systurnar Sigurrós Elín, Lilja og Ingibjörg Birgisdætur í nokkrum lögum.

Sú síðastnefnda, myndlistarkonan Ingibjörg Birgisdóttir hannaði umslagið ásamt Sindra en báðar plötur Sin fang hafa einmitt verið mikið konfekt jafnt til eyrna og augna. Sin Fang hyggur á töluvert tónleikahald í kjölfar plötunnar og stendur nú yfir skipulagning tónleikaferðar um Evrópu og svo mun hann koma fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess í apríl.


More on...

Wednesday, March 2nd, 2011 | 1:51 pm