Swords of Chaos heldur partí!

swords_promo2

Fyrsta breiðskífa Swords of Chaos er nú loks tilbúin til útgáfu og mun koma út 3. september næstkomandi. THE END IS AS NEAR AS YOUR TEETH heitir breiðskífan og kemur hún út hjá Kimi Records. Platan verður hinsvegar fáanleg í forsölu hjá GOGOYOKO frá og með miðvikudeginum 25. ágúst. Í tilefni af forsölu þá ætlar hljómsveitin að halda for-útgáfutónleika og hlustunarteiti á Venue miðvikudaginn 25. ágúst kl. 21. Þar verður hljómplatan spiluð við hátíðalega athöfn og svo munu hljómsveitirnar Stilluppsteypa og Orphic Oxtra leika tónlist sína í kjölfarið.

THE END IS AS NEAR AS YOUR TEETH inniheldur 11 lög eftir þá Albert Finnbogason (gítar), Ragnar Jón Hrólfsson (trommur), Úlf Alexander Einarsson (söngur) og Úlf Hansson (bassi). Hljómsveitin hefur unnið að plötunni undanfarin tvö ár og fyrst núna í sumar urðu allir aðilar ásáttir um að ekki yrði gert betur. Meðal þeirra sem leggja þeim lið á plötunni er tónlistarkonan Kira Kira og sex manna brasssveit.

Í síðastliðnum janúarmánuði komu fram ótímabærar fregnir af andláti sveitarinnar en þar virðist hafa verið um einhvers konar fjölmiðlabrellu að ræða, jafnvel til að fá fólk til að mæta á tónleika, tónleika sem margir töldu þeirra síðustu. Þrátt fyrir þessar fregnir þá hafa þeir komið fram á nokkrum tónleikum nú í sumar og munu halda nokkra tónleika til viðbótar á næstu mánuðum til að fylgja TEIANAYT.

Um upptökur sá Friðrik Helgason, Aron Arnarsson sá um hljóðblöndun og Helmut Elrer hljómjafnaði. Umslagshönnun var í höndum Söru Riel og Svavar Pétur Eysteinsson sá um uppsetningu. Sara Riel hannaði einnig bol sem er nú fáanlegur í Havarí. Hann er hálfgerð skyldueign fyrir aðdáendur sveitarinnar.

Tuesday, August 24th, 2010 | 10:13 am