Video: Snorri Helgason - Mockingbird amazing video to an amazing song! from Winter Sun (2011, Kimi Records),... http://t.co/8FiC9y8q
Hin tiltölulega nýstofnaða rokkhljómsveit The Heavy Experience mun senda frá sér einkar haganlega gerða 10 tommu hljómskífu þann 10. desember á vegum Kimi Records. Platan er samnefnd hljómsveitinni og inniheldur tvö glæný lög og er forsmekkur að stærri plötu sem er væntanleg á næsta ári. Heavy Experience er fimm manna sveit frá Reykjavík og hafa meðlimir hennar [...]
Hin tiltölulega nýstofnaða rokkhljómsveit The Heavy Experience mun senda frá sér einkar haganlega gerða 10 tommu hljómskífu þann 10. desember á vegum Kimi Records. Platan er samnefnd hljómsveitinni og inniheldur tvö glæný lög og er forsmekkur að stærri plötu sem er væntanleg á næsta ári. Heavy Experience er fimm manna sveit frá Reykjavík og hafa meðlimir hennar gert jaðargarðinn frægan með hljómsveitunum Swords of Chaos, Me, the Slumbering Napoleon, Doctuz, Carpet Show o.s.frv. Hljómur sveitarinnar er einkar athyglisverður fyrir það leyti að einn meðlima leikur á saxafón og þykir það hæfa þessu hæga en þunga rokki sem streymir um vit hlustenda.
The Heavy experience lék við góðar undirtektir á nýliðinni Airwaves hátíð og sagði meðal annars gagnrýnandi Grapevine að hljómsveitin hafi náð þeim undraverða árangri að láta saxafón hljóma töff. Hljómsveitin stefnir á smá tónleikahald í jólaösinni um leið og prófatíð lýkur, hljómsveitin mun meðal annars koma fram á Jólahazar Kimi Records þann 17. desember næstkomandi á Bakkus.
Plötuspilaralausir rokkunnendur þurfa þó ekki að örvænta því lögin verður hægt að nálgast á öllum helstu tónlistarveitum landsins auk þess sem niðurhalskóði kemur til með að fylgja plötunni. Þá er hægt að nota plötuna sjálfa sem stofustáss, en umslagið þykir mikið augnayndi.
Hér má hlusta lag af plötunni: