Video: Úlfur - Black Shore From upcoming White Mountain, to be released by Kimi Records 2012… http://t.co/r1OEcAr7
Fyrsta breiðskífa Miri ber nafnið Okkar og er afrakstur hátt í tveggja ára vinnu hljómsveitarinnar undir traustri handleiðslu Curvers Thoroddsen. Platan inniheldur 9 lög sem flest eru instrumental (ósungin), nema eitt en þar ljær Örvar Þóreyjarson Smárason piltunum rödd sína.
Miri hefur verið starfandi með hléum síðan 2005 og gefið út eina EP plötu á því [...]
Fyrsta breiðskífa Miri ber nafnið Okkar og er afrakstur hátt í tveggja ára vinnu hljómsveitarinnar undir traustri handleiðslu Curvers Thoroddsen. Platan inniheldur 9 lög sem flest eru instrumental (ósungin), nema eitt en þar ljær Örvar Þóreyjarson Smárason piltunum rödd sína.
Miri hefur verið starfandi með hléum síðan 2005 og gefið út eina EP plötu á því tímabili, en breiðskífu frá drengjunum hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu meðal tónlistaráhugafólks. Hljómsveitin hefur getið sér einkar góðs orðs sem fjörug og kraftmikil tónleikasveit og hefur verið iðin við spilamennsku vítt og breitt um landið síðust ár, en það er einlægur ásetningur hljómsveitarmeðlima að spila sem víðast um landið. Allir eru meðlimir hljómsveitarinn aldnir upp á austurhluta landsins og þekkja því vel þá tilfinningu að hafa mikinn áhuga á tónlist en hafa ekki greiðan aðgang að framsæknum lifandi flutningi. Í sumar lék hljómsveitin m.a. á 10 ára afmælistónleikum LungA á Seyðisfirði, opnun listahátíðarinnar Ærings á Stöðvarfirði og svo á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði, Akureyri og Reykjavík með Sumargleði Kimi Records.
Eins og áður sagði hefur platan verið töluvert lengi í vinnslu en “nostrað” hefur verið við hljóð hennar til að gera það sem áheyrilegast. Ákveðið var í upphafi, í samvinnu við upptökustjórann Curver, að platan fengi ekki að líta dagsins ljós fyrr en fullkomin eining ríkti innan hópsins um að ekki yrði betur gert að þessu sinni. Nú er sú stund runnin upp.
Meðal gesta sem leggja hönd á plóg á plötunni eru Örvar Smárason syngur og spilar á munnhörpu, Ólafur Björn Ólafsson sem leikur á marimbu og sílafón og heil brasssveit þeytir lúðra!
More on... MIRI